Honda EU22i rafstöðin er létt, meðfærileg og einstaklega lágvær. Hún er búin fullkomnum spennustilli / Inverter sem hentar mjög vel fyrir viðkvæman tækjabúnað eins og td. tölvubúnað en einnig er á vélinni12V 8A tengi fyrir hleðslu á rafgeymi. Slitsterk og vönduð plast kápa hlífir vélinni fyrir hnjaski og er þyngd vélarinnar aðeins 21 kg. EU22i er búin sjálfvirkum hraðastilli fyrir álag og með sérstöku tengiboxi* er hægt að hliðtengja tvær EU22i til að tvöfalda afkastagetu.
*aukabúnaður
Hljóðlát og meðfærileg einfasa rafstöð frá Honda.
- Spenna 230
- Tíðni 50 Hz
- Afl (kW) 2,3 kW
- Afl (kVA) 2,3 kVA
- DC úttak 12V/8A
- Hljóð 90 dB(A)
- Lengd 512 mm
- Breidd 290 mm
- Hæð 425 mm
- Þyngd 21 kg
- Eldsneytistegund Bensín
- Eldsneytistankur 3,6 ltr
- Eldsneytiseyðsla 1,0 ltr/klst